facebook

Dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma, krabba og bílslysa mun fjölga
Miðvikudagur, 21. Maí 2008 14:05

who.jpgDauðsföllum vegna hjartasjúkdóma, krabbameins og bílslysa mun snarfjölga næstu 20 árin, eftir því sem íbúar þróunarríkja verða efnaðri og lifa lengur, samkvæmt rannsóknarniðurstöðum sem Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin, WHO, birti í dag.

Árið 2030 verða dauðsföll af öðrum völdum en smitsjúkdóma um 30% af öllum dauðsföllum í heiminum. Á sama tíma mun dauðsföllum af orsökum sem nú eru yfirleitt tengdar við þróunarríki, eins og til dæmis næringarskorti, malaríu og berklum, fækka.

Dauðsföllum af völdum krabbameins í heiminum mun fjölga úr 7,4 milljónum 2004 í 11,8 milljónir 2030, segir í skýrslu WHO, og dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma fjölga úr 17,1 milljón í 23,4 milljónir á sama tíma.

Með aukinni bílaeign í heiminum mun dauðsföllum vegna bílsslysa fjölga úr 1,3 milljónum í 2,4 milljónir.

Aftur á móti telur WHO að dauðsföllum vegna HIV/AIDS muni fjölga í 2,4 milljónir 2012 en síðan fækka í 1,2 milljónir fram til 2030.

www.mbl.is 20.05.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066