facebook

Deilur á Landspítala að leysast?
Mánudagur, 28. Apríl 2008 15:44

landspitali.jpgGeir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að hann hefði góðar vonir um að það rætist úr málum á Landspítala áður en þessi dagur verður að kveldi kominn. Boðað hefur verið til blaðamannafundar á Landspítalanum síðdegis um vinnutímatilskipun Evrópusambandsins sem taka á gildi 1. maí fyrir hjúkrunarfræðinga á skurðstofum og við svæfingar.

Geir var að svara fyrirspurn frá Álfheiði Ingadóttur, þingmanni VG, sem spurði hvernig ríkisstjórnin hygðist bregðast við yfirvofandi neyðarástandi á Landspítala ef hjúkrunarfræðingar á svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviði Landspítala hætta störfum um mánaðamótin eins og útlit hefur verið fyrir.

www.mbl.is 28.04.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066