| Dorrit tók við hálsmeni fyrir hjartveika |
| Föstudagur, 05. Desember 2008 15:22 |
|
Forsetafrúin sagði í viðtali við blaðamann DV að gripurinn væri rosalega fallegur. Hún hyggst reyna að koma honum í sölu erlendis líka. „Já, það er alveg sjálfsagt, ég reyni að selja allt sem ég get fyrir landið,“ segir Dorrit.
Fyrirmynd gripsins er sóttur í íslenska náttúru og fæst einungis í verslun Leonard í Kringlunni og Leifsstöð. Hálsmenið kostar 9.500 krónur og rennur allur ágóði til Neistans. |
