facebook

Eins nærbuxur fyrir bæði kyn
Mánudagur, 25. Febrúar 2008 11:14
Multithumb found errors on this page:

There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/unisex.jpg

unisex.jpg Svíar, sem hafa löngum verið framarlega í jafnrétti kynjanna, ætla að hefja framleiðslu á nýjum nærbuxum fyrir sjúklinga sem bæði kyn geta notað.

Með því vonast stjórnvöld til að spara bæði pláss og peninga. Um er að ræða nýtísku "boxer"-nærbuxur sem eru taldar henta bæði konum og körlum sem liggja á sjúkrahúsum landsins. Hingað til hafa sænskir sjúklingar notað fjórar mismunandi tegundir af nærbuxum, tvær gerðir fyrir hvort kyn. Búist er við að nærbuxnatillagan verði samþykkt endanlega í apríl og að nýju nærbuxurnar verði teknar í notkun skömmu síðar.

Fréttablaðið 25.02.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066