| Eins og þingflokkur VG sé ekki í jafnvægi |
| Mánudagur, 17. Mars 2008 10:00 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/gudlaugur_thor.jpg ÞETTA virkar eins og þingflokkurinn sé ekki í miklu jafnvægi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra um ályktun þingflokks Vinstri-grænna um stöðu heilbrigðiskerfisins.
Hann segir virtar erlendar stofnanir á borð við OECD hafa tekið út fjárframlög til heilbrigðismála hérlendis og segja þær fjárframlög til málaflokksins með því allra hæsta sem gerist og lögðu til að fundnar yrðu leiðir til þess að nýta enn betur þá fjármuni sem lagðir eru í þetta á næstu árum og áratugum. „Í þessum málaflokki er eftirspurnin allt að því endalaus,“ segir Guðlaugur og hvað ummæli um að hann sinni ekki sínum þinglegu skyldum varðar, þar sem vísað er í eina utandagskrárumræðu, segir hann: „Þess ber að geta að á síðustu tveimur þingdögum svaraði ég fjórtán fyrirspurnum og lagði fram tvö lagafrumvörp, þar af mitt stærsta frumvarp til þessa, frumvarp til lyfjalaga.
Spurður um uppsögn Magnúsar Péturssonar, forstjóra Landspítala, segir Guðlaugur að samkomulag hafi náðst um hana en Magnús vildi sjálfur í samtali við Morgunblaðið ekkert tjá sig um málið. |

ÞETTA virkar eins og þingflokkurinn sé ekki í miklu jafnvægi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra um ályktun þingflokks Vinstri-grænna um stöðu heilbrigðiskerfisins.