facebook

Ekki hætt við hátæknisjúkrahús
Föstudagur, 23. Nóvember 2007 13:48

gulli_radherra.jpgEngin stefnubreyting hefur orðið hvað varðar áform um að reisa nýtt hátæknisjúkrahús, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra. Hann segir óskiljanlegt að forveri sinn í embætti geti skilið svör sín um málið á Alþingi þannig að hætt hafi verið við að reisa sjúkrahúsið.

Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, óskaði nýverið eftir svörum frá núverandi ráðherra um fyrirætlanir varðandi byggingu hátæknisjúkrahúss.

Siv sagði í Útvarpsfréttum í gær að skilja mætti svar Guðlaugs Þór Þórðarsonar heilbrigðisráðherra á þann veg að málið væri komið á byrjunarreit og jafnvel að hætt hwefði verið við að reisa hátæknisjúkrahús í Vatnsmýri.

 

Guðlaugur Þór furðar sig á ummælum Sivjar. Hann segir óskiljanlegt hvernig Siv geti túlkað svar hans þannig að hætt hafi verið við að reisa sjúkrahúsið. Engin stefnubreyting sé varðandi þau áform. Guðlaugur Þór bendir þó á að þegar um svo stórt mál sé að ræða verði menn að fara yfir stöðuna og sjá hvort eitthvað megi betur fara.

www.ruv.is 23.11.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066