| ,,Ekki okkur að kenna" |
| Föstudagur, 09. Febrúar 2007 00:00 |
,,Fyrstu viðbrögð kerfisins virðast alltaf vera að þetta hafi verið óhappatilviljun. Þetta hafi ekki verið neinum að kenna," segir Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður sem um áraskeið hefur rekið og rekur mál sjúklinga sem orðið hafa fyrir tjóni vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu. Nokkur slík mál eru nú fyrir dómstólum. "Sjúklingar sem til mín hafa leitað eru samhljóða um að þeir fái hvorki skýringar né upplýsingar.Þeim finnst starfsfólk forðast sig og upplifa að það sé hreinlega verið að hafna þeim, af því að það gerðist eitthvað sem enginn vill taka ábyrgð á og ræða. Þeim er sjaldnast bent á úrræði eins og lög um sjúklingatryggingu."
Dögg segist vilja sjá miklar breytingar og þá fyrst á viðhorfinu líkt og sir Liam hafi lagt mikla áherslu á. "Ég vil að það sé gengið að hverju tilviki sem fer úrskeiðis með algjörlega opnu hugarfari en ekki þeirri afstöðu að þetta hafi verið óhapp og ekki okkur að kenna og síðan reynt að finna rökin fyrir því. Mér finnst að þær umsagnir sem ég hef fengið í málum sem ég hef sent til umsagnar Landlæknisembættisins mótist mjög af þeirri afstöðu að hvítþvo heilbrigðisstarfsmenn sem að málum koma. Ég er þess vegna nánast hætt að senda þangað mál til umsagnar." |

,,Fyrstu viðbrögð kerfisins virðast alltaf vera að þetta hafi verið óhappatilviljun. Þetta hafi ekki verið neinum að kenna," segir Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður sem um áraskeið hefur rekið og rekur mál sjúklinga sem orðið hafa fyrir tjóni vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu. Nokkur slík mál eru nú fyrir dómstólum. "Sjúklingar sem til mín hafa leitað eru samhljóða um að þeir fái hvorki skýringar né upplýsingar.