| Ekki sparnaður af lyfjabreytingum |
| Miðvikudagur, 16. Febrúar 2011 12:53 |
|
Þorbjörn segir að stefna íslenskra heilbrigðisyfirvalda gangi þvert gegn niðurstöðum erlendra rannsókna og leiðbeiningum Evrópusambands hjartalækna. Erlendis hafi áherslan aukist á það undanfarin ár að gefa hjartasjúklingum ný og öflug hjartalyf því þau dragi verulega úr líkum á hjartaáfalli. Þorbjörn segir að fyrir tveimur árum hafi mjög margir hjartasjúklingar hér á landi verið settir á ódýrari lyfin. Þetta gerðu stjórnvöld í sparnaðarskyni: Þorbjörn segist telja að það sé enginn sparnaður af þessum breytingum heldur þvert á móti tap. „Ef þetta leiðir til þess að fólk veikist og þurfi endurteknar aðgerðir, hjartaaðgerðir og hjartaþræðingar, endurteknar innlagnir, ég tala nú ekki um dauðsföll, þá er enginn sparnaður í því,“ segir Þorbjörn
|
