| Ellistoppari Sigga blóma |
| Fimmtudagur, 13. Mars 2008 20:22 |
|
„Við höfum eina íslenska jurt sem hefur að geyma eiginleika Viagra,“ segir Siggi en vill ekki gefa upp hvaða jurt það er. „Það tók dágóðan tíma að finna hana en það er svolítið af henni á Vestfjörðum. Hún varðveitist vel þar sem snjóar mikið á veturna og finnst í um 300 metra hæð.“ Ein jurtablandan sem Siggi hefur þróað heitir Ellistopparinn og viðheldur æskublómanum líkt og nafnið gefur til kynna. Siggi hefur prófað blönduna á stórum vinahóp og eftirspurnin er mikil. Íslenska Viagrablandan sem hann kallar svo fór að njóta vinsælda eftir að kunningi Sigga sauð hana eftir leiðbeiningum hans: „Hann vildi ólmur meira því þetta svínvirkaði,“ segir Siggi hlæjandi. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. www.bb.is 13.03.2008 |
