| Engin hætta ef steikt er í ólífuolíu |
| Fimmtudagur, 26. Janúar 2012 00:00 |
|
Steiktur matur er ekkert líklegri til að auka hættu á hjartaáföllum og ótímabærum dauða en önnur fæða ef notuð er ólífuolía við steikinguna, að sögn spænskra vísindamanna. BBC segir að um sé að ræða niðurstöður könnunar á heilsu og mataræði liðlega 40 þúsund manna í 11 ár. Morgunblaðið 26.01.2012 |
