| Er alþekkt glaðlyndi Íslendinga lýsinu að þakka? |
| Fimmtudagur, 04. September 2008 11:12 |
|
Rannsóknir hafa sýnt að lýsi hefur góð áhrif í vörnum gegn hjarta- og æðasjúkdómum, blóðflögumyndun og háu kólesteroli. Einnig hafa niðurstöður rannsókna bent til þess að lýsi hafi jákvæð áhrif gegn sóriasis, liðagigt, alzheimer, asma og svo mætti lengi telja. Nýjustu rannsóknir sýna okkur síðan á óyggjandi hátt að regluleg inntaka lýsis geti aukið einbeitingu barna og komið í veg fyrir ofvirkni og síðast en ekki síst unnið gegn þunglyndi. Þar er kannski að finna skýringu á glaðlyndi Íslendinga sem flestallir hafa neytt lýsis í ríkulegum mæli í gegnum tíðina. |
