| Færir Landspítalanum 30 milljónir króna að gjöf |
| Miðvikudagur, 04. Júlí 2007 15:16 |
|
Sjóðurinn tekur formlega til starfa í dag en Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans, Uggi Agnarsson, hjartalæknir og Þórarinn Arnórsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir, skipa fyrstu stjórn sjóðsins. Áætlað er að tekjur sjóðsins byggi í framtíðinni aðallega á framlögum utanaðkomandi aðila og á hvers konar styrkjum, gjöfum og vaxtatekjum. Bent Scheving Thorsteinsson er fæddur í Árósum í Danmörku árið 1922. Foreldrar hans voru Þorsteinn Scheving Thorsteinsson, lyfsali, og Guðrún Sveinsdóttir. Bent hefur sitið í stjórnum margra hlutafélaga og sinnt trúnaðarstörfum fyrir ýmis félög. Eiginkona hans er Margaret Ritter Ross Wolfe frá Bandaríkjunum. Fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum að Bent færi spítalanum þessa gjöf sem þakklæti fyrir frábæra umönnun hjartalækna og hjarta- og lungnaskurðlækna. www.visir.is 04.07.2007 |
