| Færri deyja úr hjartasjúkdómum i Danmörku |
| Þriðjudagur, 23. September 2008 09:02 |
|
Danir lifa nú að jafnaði lengur með sjúkdómum sínum og þakka heilbrigðisyfirvöld þetta auknum forvörnum, aukinni notkun blóðþrýstingslyfja og lyfja sem vinna gegn háu kólesteróli. Þetta er fimmta árið í röð sem sjúklingum sem deyja af völdum hjartasjúkdóma fækkar í Danmörku segir í skýrslu þarlendra heilbrigðisyfirvalda. |
