facebook

Feitur háls vísbending?
Föstudagur, 13. Mars 2009 21:11

feitur_hals.jpgHugsanlegt er að hægt sé að fá mikilvægar upplýsingar um hættuna á því að einstaklingur fá hjartasjúkdóma með því að mæla þykkt hálsins, að sögn bandarískra vísindamanna.

Oft hefur verið bent á að greinileg fylgni sé milli tíðni hjartasjúkdóma og þykktar um miðjuna, þ.e. ýstru.  Fram kemur í frétt vefsíðu BBC að nýja rannsóknin sýni að sé fólk með digran háls sé það í meiri hættu en aðrir þótt það sé með mittismálið í lagi.

Sagt var frá rannsókninni nýlega á fundi hjá hjartaverndarsambandi Bandaríkjanna en þátttakendur í henni voru um 3.300 karlar og konur, meðalaldurinn var 51 ár. Að meðaltali var ummál halsins hjá körlunum 40,5 sm en 34,2 sm hjá konunum.

www.mbl.is 12.03.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066