| Fékk hjarta úr manni sem framdi sjálfsmorð - giftist ekkjunni og framdi sjálfur sjálfsmorð |
| Þriðjudagur, 08. Apríl 2008 14:40 |
|
Á síðustu stundu fékkst hjarta handa Graham, en það var tekið úr 33 ára manni, Terry Cottle, sem framdi sjálfsmorð. Cottle, sem var fjölskyldumaður frá Suður-Karólínu, hafði skotið sig í hálsinn og látist samstundis. Hjartaígræðslan sem gerð var á Sonny Graham gekk eins og í sögu og ári seinna var hann eins og nýr maður. Hann hóf þá að skrifa þakkarbréf til fjölskyldu Cottles og árið 1997 hitti Craham hina 28 ára gömlu ekkju hjartagjafans. Þau urðu ástfangin og giftu sig þrátt fyrir að Cottles væri næstum helmingi eldri en eiginkonan. En svo gerðist eitthvað innra með Graham; í síðustu viku fór hann út í bílskúr með byssu og skaut sig í hálsinn. Eins og Cottle lést Graham samstundis. |
