facebook

Fékk í sig eldingu í almenningsgarði
Sunnudagur, 28. Júní 2009 22:11

elding_2_jpg_550x400_q95.jpgSautján ára piltur liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Birmingham á Englandi eftir að hafa fengið hjartaáfall þegar eldingu laust niður í hann í gær.

Fimm aðrir táningar voru færðir á sjúkrahús eftir að eldingu laust niður í Small Heath almenningsgarðinn í Birmingham í gær. Ástand þeirra er stöðugt að því er Sky-fréttastofan greinir frá.

Þegar sjúkrastarfsmenn bar að garði var óbreyttur borgari að framkvæma hjartahnoð á hinn sautján ára pilt. Hann hlaut alvarleg brunasár eftir að hafa fengið eldinguna í sig og hjarta hans stöðvaðist.

www.dv.is 28.06.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066