| Fjölvítamínataka gagnslaus? |
| Miðvikudagur, 18. Febrúar 2009 20:11 |
|
Talið hafi verið að það gæti minnkað hættuna á hjartasjúkdómum og ákveðnum tegundum krabbameins að taka reglulega fjölvítamíntöflur en niðurstaðan hafi ekki leitt í ljós slík áhrif. Skýrt er frá rannsókninni í ritinu The Archives of Internal Medicine.
Einnig hafi rannsókn, sem skýrt var frá í fyrra, á 15.000 læknum úr röðum karla í heilan áratug ekki sýnt neinn mun á tíðni hjartasjúkdóma hjá þeim sem tóku reglulega E- og C-vítamín og hinum sem tóku ekki vítamínin. Loks hafi rannsókn á 35.000 körlum, sem sagt var frá í október, ekki sýnt fram á að lækka mætti tíðni krabbameins í blöðruhálskirtli með töku E-vítamíns og selenium. |
