| Fjórðungur greiddur í yfirvinnu |
| Þriðjudagur, 10. Júní 2008 19:47 |
|
Til samanburðar eru 14 prósent af heildarlaunagreiðslum á Landspítalanum greidd sem yfirvinna, 15 prósent sem vaktalaun og 3 prósent sem önnur laun. Heildarlaunakostnaður á Landspítalanum var rétt tæpir 24,5 milljarðar króna í fyrra. Íhuga yfirvinnubann Félag íslenskra hjúkrunarfræðingar íhugar nú að grípa til yfirvinnubanns vegna seinagangs í kjaraviðræðum félagsins við samninganefnd ríkisins. Fulltrúar beggja aðila funduðu í húsakynnum ríkissáttasemjara í morgun um málið án árangurs. Næsti fundur verður ekki haldinn fyrr en eftir hálfan mánuð. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur boðað til atkvæðagreiðslu meðal félaga sinna um hvort grípa skuli til yfirvinnubanns þann 10. júlí náist samningar ekki. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr atkvæðagreiðslunni liggi fyrir þann 23. júní.
Af yfirvinnugreiðslum á Landspítalanum má glöggt sjá hversu mikil áhrif yfirvinnubann myndi hafa á starfsemi margra heilbrigðisstofnana landsins. Á Landspítalanum má gera ráð fyrir því að neyðaráætlun taki við verði af yfirvinnubanninu. Stutt er frá því að svipað ástand var uppi á Landspítalanum vegna óánægju skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga með fyrirhugaðar vaktabreytingar þar. Ætluðu tæplega hundrað hjúkrunarfræðingar þá að láta af störfum. Ef hefði orðið af uppsögnunum hefðu einungis bráðaaðgerðir verið gerðar á Landspítalanum. Að sögn stjórnenda Landspítalans voru vaktabreytingarnar aftur á móti fyrirhugaðar til að minnka vinnulotur hjúkrunarfræðinga. |
