| Fjórir styrkir veittir úr Styrktar- og verðlaunasjóði Bent Scheving Thorsteinsson |
| Miðvikudagur, 30. Apríl 2008 00:00 |
|
Að þessu sinni var úthlutað tveimur milljónum króna til fjögurra verkefna en alls bárust þrettán umsóknir um styrk. Hvert verkefni fékk 500 þúsund krónur. Tvö þeirra falla undir lyflækningar en hin tvö skurðlækningar. Eftirtalin verkefni voru valin: 1) Davíð O. Arnar og samstarfsaðilar – Erfðafræði gáttatifs. 2) Þórarinn Guðnason og samstarfsaðilar – Samanburður á öllum kransæðaþræðingum og kransæðavíkkunum sem framkvæmdar voru í tveimur löndum, Íslandi og Svíþjóð, árið 2007. 3) Steinn Jónsson og samstarfsaðilar – Lungnabrottnámsaðgerðir á Íslandi 1986 – 2007. 4) Hannes Sigurjónsson og samstarfsaðilar – Árangur kransæðahjáveituaðgerða á Íslandi. www.lsh.is 29.04.2008 |
