| Fleiri fá fyrir hjartað |
| Þriðjudagur, 21. Október 2008 09:11 |
|
Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga á slysa- og bráðasviði, segir að á tímabilinu 3.-9.október hafi komið 25% fleiri sjúklingar á bráðamóttökuna við Hringbraut heldur en sem nemur meðaltali 40 vikna þar á undan. Í vikunni 10.-16. október hafi enn fjölgað og fjöldinn verið 35% meiri en sem nemur fyrrnefndu 40 vikna meðaltali. Á sama tíma fækkaði þeim sem komu á slysa- og bráðamóttökuna í Fossvogi, sem tekur bæði við slösuðum og þeim sem eru með önnur veikindi en út frá brjóst- og kviðarholi. Nemur fækkunin 5-7% miðað við sömu reikningsaðferðir.
„Við verðum að líta svo á að skýringuna á þessu sé að finna í kreppunni,“ segir Már Kristjánsson. |
