| Fleiri hjartaáföll á stórmótum |
| Miðvikudagur, 11. Júní 2008 20:47 |
|
Í Svíþjóð og Bretlandi hafa hjartalæknar orðið varir við fjölgun hjartaáfalla í tengslum við vítaspyrnukeppnir á stórmótum, að því er segir á vefsíðunni e24.se. Guðmundur Þorgeirsson, hjartalæknir á Landspítalanum, telur víst að hjartaáföll í tengslum við knattspyrnumót hafi ekki verið skráð hér. Hann tekur það fram að alheilbrigt fólk sé ekki í neinni hættu þótt það æsi sig yfir fótboltaleik. „En meðal þeirra tuga og hundraða þúsunda sem taka þátt í þessum hugaræsingi eru einhverjir veilir fyrir og þessar aðstæður geta kallað það fram.“ Hann bendir á að streituaðstæður þar sem menn fá ekki útrás, það er þegar þeir reyna ekki sjálfir á sig, geti verið varhugaverðar. „Hins vegar hafa svona keppnir jákvæð áhrif því að menn hafa gaman af þessu.“ Svissnesk hjartasamtök hafa gefið út bækling, 1-0 fyrir hjartað, með ráðum til fótboltaáhugamanna um hvernig forðast eigi hjartaáföll á Evrópumótinu. Varað er við áfengi, reykingum og kaloríuríkum mat auk þess sem sófapúkar eru hvattir til að hreyfa sig í hálfleik.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
