| Flestir deyja úr blóðrásarkvillum |
| Þriðjudagur, 21. September 2010 13:35 |
|
Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur yfir dánarmein Íslendinga árið 2009. Gögnin byggja á dánarvottorðum allra einstaklinga sem létust á árinu og áttu lögheimili á Íslandi við andlát. Árið 2009 létust 2.002 einstaklingar, 969 konur og 1.033 karlar. Alls létust 729 úr blóðrásarsjúkdómum en næstalgengasta dánarmeinið er krabbamein. Þriðji stærsti flokkur dánarmeina eru sjúkdómar í öndunarfærum en úr þeim dóu 175 einstaklingar á árinu. Dauðsföll vegna ytri orsaka eru fjórði stærsti flokkurinn. Á árinu 2009 létust 118 af slíkum orsökum. Þar af létust 10 í umferðarslysum og 36 féllu fyrir eigin hendi sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Á árinu voru skráð 140 ótímabær dauðsföll. Það eru andlát vegna tiltekinna dánarorsaka sem hefði mátt komast hjá með viðeigandi meðferð eða forvörnum. |
