| Flugstjóri Iceland Express nauðlenti til að bjarga mannslífi |
| Laugardagur, 09. Ágúst 2008 20:30 |
|
Manneskja fékk hjartaáfall um borð í vél Iceland Express á leiðinni frá Barcelona til Íslands í gær. Flugstjórinn mat ástandið það alvarlegt að hann ákvað að lenda vélinni í Basil í Sviss, til að manneskjan kæmist sem allra fyrst undir læknishendur, sem er hárrétt ákvörðun því að hver mínúta er dýrmæt þegar um hjartaáfall er að ræða. Þetta þýddi að vélinni þurfti að leggja yfir nótt, vegna þess að starfsmenn vélarinnar voru sprungnir á leyfilegum flugtíma yfir sólarhringinn. Einhverjir farþegar mótmæltu og voru ósáttir við að flugvélinni væri lent, en aðrir farþegar sýndu meiri skilning. Um kvöldið fengu farþegar góðan kvöldverð í boði Iceland Express, fengu gistingu á lúxushóteli og síðan morgunverðarbuffát um morguninn. Ég hef kíkt eftir fréttum um þetta en engar séð, aðeins fréttir af fólkinu sem var í öngum sínum á Kastrup, og mér finnst rétt að benda á það að Iceland Express er að gera góða hluti. Eina vandamálið snýst kannski að upplýsingaöflun, en upplýsingar um komutíma og hvernig aðstandendur gætu náð sambandi við farþega var erfitt að finna.
Þessi flugstjóri tók góða ákvörðun sem hann þarf að réttlæta, en ég vil bæta um betur og leyfa mér að hrósa honum fyrir snarræðið. Það þarf stundum hugrekki til að taka rétta ákvörðun, sérstaklega ef einhverjir snúast gegn henni. Ef einhver mér nástaddur fengi hjartaáfall í flugvél myndi ég vilja hafa svona flugstjóra við stýrið. |
