| Fögnum hjartanlega samningi við hjartalækna |
| Miðvikudagur, 28. Maí 2008 11:03 |
|
Á fundi sem fulltrúar Hjartaheilla áttu með heilbrigðisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, síðastliðinn vetur lýsti ráðherra yfir eindregnum vilja til að ná samkomulagi við hjartalækna en sú vinna mundi fara fram samhliða samningagerð við aðra sérfræðilækna en hjá allmörgum læknastéttum rann samningstíminn út nú í vor. Á fundum samtakanna með hjartalæknum og fulltrúum ráðuneytisins kom einnig fram sami vilji til samkomulags þrátt fyrir að hvorugur aðili virtist hafa fjárhagslegan ávinning af því. Báðum samningsaðilum var hinsvegar ljóst að óbreytt ástand bitnaði fyrst og fremst á hjartasjúklingum. Sjúklingar þurfa nú ekki lengur að leggja út fyrir öllum kostnaði vegna þjónustu hjartalækna og sækja síðan um endurgreiðslu á hluta sínum til Tryggingastofnunar heldur einungis að greiða sinn hlut í kostnaði við þjónustuna.
Samningurinn gildir um alla hjartalækna sem voru í starfi í apríl 2008 og tekur til þjónustu sem veitt er utan sjúkrahúsa. Hafa læknar frest til 1. júní til að staðfesta aðild sína að samningum en samningurinn gildir frá 5. maí 2008 til og með 31. mars 2010. Samningurinn milli samninganefndar heilbrigðisráðherra og hjartalækna er á sömu nótum og samningur sem undirritaður var fyrir skömmu og tekur til þjónustu annarra sérfræðilækna. Stjórn Hjartaheilla hvetur því hjartalækna til að samþykkja samninginn og þakkar báðum aðilum fyrir að samningar skuli nú hafa tekist.
F.h. stjórnar Hjartaheilla, landssamtaka hjartasjúklinga Guðmundur Bjarnason formaður
Ásgeir Þór Árnason framkvæmdastjóri |
