Það er ekki bara óhollt fyrir sálina að verða reiður eða byrgja inn reiði sína, heldur líkamann líka. Einnig bendir ýmislegt til þess að niðurbæld reiði geti haft áhrif á ónæmiskerfið. Sýnt hefur verið fram á tengsl milli reiði og hjartasjúkdóma. Þeir sem að bæla reiði sína í sér lengi þar til að þeir "springa" eiga tvöfalt meiri hættu á hjartaáfalli heldur en þeir sem eru í góðu jafnvægi.
Fólk sem hefur vald á að stilla skap sitt er ekki í eins mikilli hættu. Niðurstöður rannsókna sýna fram á að þeir rólyndu séu í margfalt minni hættu á að fá hjartasjúkdóma miðað við þá "reiðu" og æsingurinn sem fylgir reiðinni sé jafnhættulegur hjartanu og hátt kólestrormagn í blóði.
Hvað er þá hægt að gera? Sérfræðingar benda á að regluleg líkamshreyfing gefi fólki mikla og jákvæða útrás. Það er góð regla að hugsa jákvætt og vera bjartsýn. Ekki taka reiðina út á öðru fólki, það smitar bara út frá sér og gerir illt verra. Það er einnig góð regla að telja upp á 10 og draga djúpt andann til að jafna sig. Ýmiskonar hugleiðsla og jóga getur einnig hjálpað þér til að komast í betra jafnvægi. Hvað sem þú gerir, skaltu finna jákvæða útrás fyrir reiði og neikvæðar tilfinningar. Það marg borgar sig fyrir heilsuna.