| Forn-Egyptar þjáðust líka af hjartasjúkdómum |
| Fimmtudagur, 19. Nóvember 2009 20:47 |
|
Fituhrörnun er skilgreind sem þrenging slagæða vegna myndunar fitulags innan á veggjum þeirra. „Fituhrörnun er mjög algeng meðal manna nútímans og þótt lífsstíll þeirra sé ólíkur lífsstíl Forn-Egypta komumst við að því að hún var fremur algeng meðal hátt settra Forn-Egypta sem lifðu fyrir allt að þremur árþúsundum,“ sagði Gregory Thomas, prófessor í hjartasjúkdómafræði við Kaliforníuháskóla. „Rannsóknin bendir til þess að við þurfum að rannsaka fleira en áhættuþætti nútímans til að öðlast fullan skilning á sjúkdómnum.“
Fituhrörnunin hefur einkum verið rakin til fituríkra matvæla, hreyfingarleysis og reykinga. Bandarískir og egpypskir hjartasérfræðingar rannsökuðu 20 múmíur faraóa. Rannsókn þeirra leiddi í ljós að níu af sextán múmíum með greinanlegar slagæðar voru með merki um fituhrörnun. |
