facebook

Forsetinn í hjartaþræðingu og kransæðavíkkun
Fimmtudagur, 09. Október 2008 11:19

olafur_ragnar.jpgÓlafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gekkst undir hjartaþræðingu og kransæðavíkkun á Landspítalanum fyrr í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Þar segir að forsetinn hafi dvalið á hjartadeild Landspítala á mánudag og þriðjudag í þessari viku og gengist undir hjartaþræðingu og kransæðavíkkun. Aðgerðin tókst ágætlega en í framhaldi af henni hafa læknar ráðlagt forseta að vera ekki í fullu starfi næstu daga.

www.visir.is 09.10.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066