| Forstjóri kveður samstarfsfólkið |
| Föstudagur, 28. Mars 2008 16:45 |
|
Magnús hefur gegnt starfi sínu í níu ár en um miðjan mánuðinn var tilkynnt um að hann myndi láta af störfum 1. apríl eftir að hafa gert samkomulag við ráðherra. Magnús hefur ávallt haft þann háttinn á að heimsækja allar deildir og ræða við starfsfólkið sem þar vinnur um hvað megi betur fara og til að kynnast því. Að því er ekki hlaupið fyrir forstjóra á langstærsta vinnustað landsins þar sem um 5.000 manns starfa. Magnúsi virðist þó hafa tekist vel upp við það á liðnum árum því allir virtust vera ákafir í að fá að taka í hönd hans að leiðarlokum og þakka honum fyrir vel unnin störf.- kdk |
