| Forstjóri Landspítala í ársleyfi frá störfum |
| Þriðjudagur, 28. Júlí 2009 12:23 |
|
Pressan skýrði í gær frá því að Hulda hefði farið fyrr í sumarfrí en áætlað hafði verið vegna persónulegra ástæðna en vaxandi áhyggjur væru meðal starfsfólks sjúkrahússins um að breyttar ytri aðstæður gerðu það jafnframt að verkum að Hulda myndi jafnvel ekki snúa aftur til starfans.
Í kjölfar fréttar Pressunnar óskaði Hulda eftir því við heilbrigðisráðherra að fá ársleyfi frá störfum. Það hefur ráðherra gert frá og með 1. október næst komandi. Björn Zoëga mun sinna starfi forstjóra meðan á ársleyfi Huldu stendur. |
