| Frábært framtak LSH |
| Þriðjudagur, 06. Febrúar 2007 00:00 |
Vikuna 19. - 23. febrúar verður haldin öryggisvika á LSH. Öryggisvikan verður haldin í framhaldi af málþingi Landlæknisembættisins um öryggi sjúklinga en helsti ræðumaður þar er landlæknir Breta, sir Liam Donaldson. Í öryggisvikunni verður fræðsluefni varðandi öryggismál sýnt á fimm geisladiskum frá "National Patient Safety Agency" í Bretlandi.Tilgangur vikunnar er að vekja fólk til umhugsunar um ákveðnar staðreyndir í tengslum við "atvik" og viðbrögð við þeim. Einnig að fá umræður um viðhorf og menningu í tengslum við gæði þjónustu og lágmörkun skaða. Hér má sjá plakat og bækling sem hafa að geyma nánari upplýsingar um tímasetningar og dagskrá. |

Vikuna 19. - 23. febrúar verður haldin öryggisvika á LSH.