| Franskur leikmaður fékk hjartaáfall |
| Laugardagur, 19. Janúar 2008 15:13 |
|
Hann féll niður á 23. mínútu leiksins og sjúkrateymi beggja liða hófu strax endurlífgun á leikmanninum. Var hjartastuðtæki m.a. notað áður en hann var fluttur með hraði á sjúkrahús. Randrianantoanina hefur leikið með frönsku liðunum Gueugnon og Brest en forráðamenn Niort segja að ástand leikmannsins sé enn alvarlegt.
Phil O'Donnell, fyrirliði skoska úrvalsdeildarliðsins Motherwell, lést í lok desember s.l. eftir að hann fékk hjartaáfall í leik með liðinu. Á undanförnum árum hafa margir knattspyrnumenn látist eftir að hafa fengið hjartaáfall. Má þarf nefna Antonio José Puerta Pérez sem lék með Sevilla á Spáni. Hann lést í lok ágúst á síðasta ári og var þá 23 ára gamall. Miklos Feher frá Ungverjalandi lést í janúar árið 2004 í leik með Vitoria Guimaraes í Portúgal en hann var 24 ára gamall.
Marc-Vivien Foe, landsliðsmaður frá Kamerún, féll niður í landsleik gegn Kólumbíu í júní árið 2003. Vivien Foe var á þeim tíma leikmaður Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Hann reyndist vera með hjartagalla. |
