| Fréttir af hjarta.net |
| Fimmtudagur, 01. Mars 2007 00:00 |
Þá er runnin upp 1 mars og Hjarta. net á afmæli í dag. Í dag eru tvö ár síðan Hjarta.net fór í loftið og þó svo að fyrsta starfsárið hafi verið tilraunakennt og meira þreifingar um hvernig síðan ætti að vera hefur fjölgun í lesendahópnum alltaf verið stöðug.
Heimsóknir á Hjarta.net í febrúar 2007 voru rétt tæplega 3000 eða um 100 á dag og fyrir það er ég þakklátur. Þess má geta að um 56% af þeim sem komu inn á síðuna er fólk sem er að koma aftur og aftur. Ýmsar hugmyndir eru uppi um efni inn á hjarta.net og smásaman bætum við við þannig að allir þeir sem eru í hjartahugleiðingum ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þó má geta þess að verið er að vinna áhugavert efni fyrir aðstandendahluta síðunar eða Hjartavini og er líklegt að það líti dagsins ljós í marsmánuði. Einnig er í farvatninu að kynna síðuna betur en fram til þessa hefur engin opinber kynning eða auglýsing á síðunni átt sér stað að neinu ráði ef undan er skilin skráning síðunar hjá Leit.is. Reyndar gerði ég heilmikið átak í því að hafa samband við heilsugæslustöðvar og sjúkrahús á landsbyggðinni til að setja tengla hjá sér inn á hjarta.net og var því mjög vel tekið og fæ ég mikið af heimsóknum í gegn um þessa tengla. Það er ánægjulegt til þess að vita að fréttakerfið sem við settum hér inn fyrir um mánuði mælist vel fyrir hjá lesendum okkar og er það gleðilegt. Þó svo að allar fréttir fjalli kannski ekki akkúrat um hjartað þá finnst mér líka mikilvægt að á Hjarta.net sé að finna fréttatengt efni þar sem verið er að fjalla um öryggi okkar sem sjúklinga og eins þegar verið er að fjalla um sjúkrahúsið sem við þurfum flest að sækja þjónustu til þ.e. LSH. Þá þurfum við að vita hvað verið er að ræða um þannig að við getum verið upplýst í umræðunni sem á sér stað. Ég stefni að því að bæta við meira af féttum sem tengjast hjartabilun en eins og margoft hefur komið fram hér er hagur hjartabilaðra mér hjartfólgin. Ég vil líka benda á að ég hef bætt töluvert við af eldri greinum og koma þær ekki fram sem nýtt efni heldur í þeirri tímaröð sem þær hafa birst í blöðum síðustu mánuði. Ég vona að lesendahópur Hjarta.net eigi enn eftir að vaxa og ég hvet ykkur eindregið til að láta skoðanir ykkar í ljós hvort sem um er að ræða hugmyndir að efni eða athugasemdir. Það er líka mjög vinsælt að fá kvittað í gestabókina. |

Þá er runnin upp 1 mars og Hjarta. net á afmæli í dag. Í dag eru tvö ár síðan Hjarta.net fór í loftið og þó svo að fyrsta starfsárið hafi verið tilraunakennt og meira þreifingar um hvernig síðan ætti að vera hefur fjölgun í lesendahópnum alltaf verið stöðug.