facebook

Fundu gen sem hefur áhrif á háþrýsting
Mánudagur, 11. Maí 2009 10:18
hjartasneidmynd_201002.jpgVísindamenn Hjartaverndar hafa í samvinnu við alþjóðlegt teymi vísindamanna fundið gen, sem stjórnar blóðþrýstingi og hefur áhrif á háþrýsting, að því er fram kemur í vísindatímaritinu Nature Genetics. Þetta kann að leiða af sér nýjar aðferðir í baráttunni við sjúkdóminn, sem er ein helsta ástæða heilablóðfalla og er verulegur áhættuþáttur fyrir þróun kransæðasjúkdóms og hjartaáfalla. Talið er að einn af hverjum þremur einstaklingum á miðjum aldri hafi háþrýsting.

www.visir.is 11.05.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066