| Fylgni á milli veikindafrídaga og dauðsfalla |
| Föstudagur, 03. Október 2008 10:50 |
|
Rannsóknin er byggð á upplýsingum um 6.500 opinbera starfsmenn. Notuð voru gögn um starfsmenn 20 opinberra stofnana í London á árunum 1985 til 1988 og þau borin saman við dánartíðni innan sama hóps árið 2004. 288 einstaklingar sem rannsóknin náði til létust á umræddu tímabili. Samkvæmt rannsókninni voru 30% starfsmannanna einu sinni eða oftar í sjö daga frá vinnu og sextán árum síðar var dánartíðni þeirra 66% hærri en annarra. Mest var fylgnin á milli fjarvista sökum hjartveiki, blóðtappa og geðrænna vandamála. Þá sýnir rannsóknin einnig fylgni á milli öndunarfærasýkinga og dánartíðni.
Jenny Head, sem vann að rannsókninni, segir það helst hafa komið á óvart hversu mikil fylgni er á milli veikindafjarvista vegna andlegra kvilla og dauðsfalla af völdum krabbameins Segir hún ástæður þessa ekki hafa verið rannsakaðar sérstaklega en telur hugsanlegt að hluta skýringarinnar sé að finna í því að þeir sem þjáist af andlegum kvillum leiti síður til lækna er þeir verða varir við frumeinkenni krabbameins en aðrir. |
