facebook

Fyrirliði Espanyol lést úr hjartaáfalli í æfingaferð liðsins
Sunnudagur, 09. Ágúst 2009 07:58
spain_espanyol_play_367416c.jpgDani Jarque fyrirliði Espanyol er látinn. Hann fékk hjartaáfall í æfingabúðum liðsins á Ítalíu en spænskur fjölmiðlar greindu frá þessu í kvöld.

Jarque sem var 26 ára gamall er sagður hafa látist á hóteli liðsins í bænum Coviciana á Ítalíu.

Hann fannst látinn þegar liðsfélagar hans huguðu að honum eftir að hann kom ekki í mat.

Espanyol hefur ekki enn staðfest andlát hans.

Andlát hans kemur tveimur árum eftir að Antonio Puerta varnarmaður Sevilla lést 22 ára gamall eftir að hafa hnigið niður í opnunarleik spænsku deildarinnar.

www.fotbolti.net o8.08.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066