| Gæði spítalaþjónustunnar efld með verkefnum |
| Laugardagur, 05. Mars 2011 15:35 |
|
Björn nefnir tvö verkefni sem dæmi. „Annars vegar „Sjúklingaráðin tíu“ og hins vegar mælingar á ánægju sjúklinga. Bæði verkefnin byggja á beinni þátttöku sjúklinga og hvernig nýta megi upplifun og hugmyndir þeirra til þess að efla þjónustuna,“ skrifar Björn í föstudagspistli, sem birtur er á vef spítalans. Hann segir að „Sjúklingaráðin tíu“ hvetji sjúklinga á einfaldan hátt til að spyrja, upplýsa og fá upplýsingar um 10 atriði sem séu mikilvæg í meðferðinni, s.s. verki, lyf, hlutverk aðstandenda, framhaldsmeðferð o.fl. Þá segir hann að ráðin verði aðgengileg sjúklingum á deildum og á biðstofum. „Einnig förum við á næstu vikum í að mæla ánægju sjúklinga með spurningalistum sem verða sambærilegir við þá sem notaðir eru á öðrum sjúkrahúsum í Evrópu,“ segir Björn. |
