facebook

Gáfu hjartastuðtæki
Þriðjudagur, 12. Febrúar 2008 00:00

hjartastud.jpgÍþróttabandalag Reykjavíkur afhenti í dag íþróttafélögum borgarinnar tuttugu og þrjú hjartastuðtæki til að nota í neyðartilfellum. Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík segir um gríðarlega framför að ræða.

Eins og dæmin hafa sannað skipta fyrstu mínúturnar sköpum þegar fólk fær hjartastopp. Til að auka öryggi íþróttaiðkenda ákvað ÍBR að koma upp hjartastuðtækjum í flestum íþróttamannvirkjum borgarinnar og naut fulltingi fyrirtækisins Atorku við það. Tuttugu og þremur tækjum var úthlutað í dag og starfsmenn íþróttamiðstöðvanna munu síðan fá fræðslu í notkun þeirra hjá Slökkviliðinu.

Sjá umfjöllun Rúv um málið hér 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066