| Gagnrýnir áform um flatan niðurskurð á LSH |
| Mánudagur, 05. Október 2009 00:00 |
|
Spurð hvað hún eigi við, að flatur niðurskurður sé hættulegur, segir Hulda: „Ég á við að þá þurfi annaðhvort að hætta að veita ákveðna þjónustu eða skera svo niður við nögl, að þegar þörf skapast fyrir þjónustuna, þá er ekki nóg af fólki til staðar til þess að veita hana.“
Í tillögunum felst m.a. að leitað verði til Landspítalans með flóknustu og dýrustu aðgerðirnar, en nærþjónustan verði á öðrum spítölum. „Þeir þjóna þá nærsamfélaginu á góðan hátt,“ segir Hulda. „En það er of kostnaðarsamt að gera flóknar aðgerðir á öllum spítölunum, eins og til dæmis keisaraskurði og áhættufæðingar, og þá er ég að tala um Kragasjúkrahúsin, Akranes, Selfoss, Keflavík og St. Jósefsspítala.“ |
