| Gengur efnahagsnefnd erinda tryggingafélaga? |
| Fimmtudagur, 22. Febrúar 2007 00:00 |
|
Verði frumvarpið hins vegar samþykkt óbreytt verði ekki annað séð en efnahags- og viðskiptanefnd gangi erinda tryggingafélaganna og horfi til óskilgreindra viðskiptahagsmuna á kostnað persónuverndarsjónarmiða einstaklingsins. Þá segir Læknafélagið enn fremur að með frumvarpinu sé reynt að skipta þjóðinni í hinn hreina kynstofn annars vegar og hina hins vegar með því að heimila tryggingafélögum að óska eftir staðfestingu á því að tryggingartaki sé ekki haldinn tilteknum sjúkdómi. „Með slíkri heimild er orðið stutt í að tryggingarfélögin geti farið að gera greinarmun á þeim sem leggja slíka staðfestingu fram og þeirra sem það gera ekki," segir í umsögn Læknafélagsins um breytingartillöguna. Þá óskar Læknafélagið eftir því að þingnefndin leiti álits Persónuverndar á athugasemdum félagsins. Umsögn læknafélagsins Frétt af vísi.is |
