| Góð tannhirða er hjartans mál |
| Föstudagur, 28. Maí 2010 00:00 |
|
Fram kemur í rannsókninni, sem er birt í The British Medical Journal, að þeir sem hirða illa um tennurnar og tannholdið eigi í aukinni hættu á að fá hjartasjúkdóma miðað við þá einstaklinga sem bursta tennurnar tvisvar á dag. Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamenn rannsaka hvort tengsl séu á milli tíðni tannburstunar og þess hvort fólk geti fengið hjartasjúkdóma. Fram kemur á vef BBC að góð tannheilsa sé aðeins einn þáttur í góðri heilsu. Vitað sé að bólgur í líkamanum, m.a. í munni og tannholdi, geti haft slæm áhrif á æðakerfi, þ.e. leitt til þess að æðar stíflist sem geti leitt til hjartaáfalls. |
