| Góðtemplarar gefa FSA 50 milljónir |
| Mánudagur, 04. Febrúar 2008 17:59 |
|
„Gjöf okkar til Sjúkrahússins á Akureyri fylgir sú einlæga ósk og von að hún komi að sem bestum notum fyrir fólkið sem þangað leitar, en margt af því hefur efalaust tekið þátt í stúkustarfi á sínum yngri árum,“ segir Árni Valur Viggósson, stjórnarformaður Góðtemplarareglunnar á Akureyri.
„Þessi gjöf hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri og þá starfsemi sem hér fer fram, því hún stóreykur möguleika okkar á að greina, rannsaka og fást við hjartasjúkdóma. Við erum Góðtemplarareglunni á Akureyri mjög þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Hún kemur í góðar þarfir,“ segir Halldór Jónsson, forstjóri FSA. |
