| GoRed fyrir konur á Íslandi – forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma |
| Þriðjudagur, 17. Febrúar 2009 09:56 |
|
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum. GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation og á Íslandi er það unnið í samvinnu við Hjartavernd. Verndari átaksins er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra. Af hverju GoRed
Hvaða konur eru í forgangi?
Hvernig höldum við áfram? Evrópska stefnuskráin um heilbrigði hjartans miðar að því að kortleggja hvernig forvörnum hjarta- og æðasjúkdóma er háttað í Evrópu. Hjartavernd er þátttakandi í verkefninu fyrir hönd Íslands, og miðar næsti áfangi að konum. Á heimavelli viljum við að tekið sé tillit til kvenna í gerð heilbrigðisáætlana er varða hjarta- og æðasjúkdóma. Einn þáttur í slíku er útbreiðsla skilaboða og vitundarvakning, líkt og GoRed fyrir konur. Við vonumst til að þú sjáir þér fært að taka þátt í GoRed átakinu með okkur.
Ekki bíða til morguns – hugsaðu um hjartað þitt í dag!
Formaður stjórnar GoRed Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar |
