facebook

Græn svæði góð fyrir heilsuna
Sunnudagur, 09. Nóvember 2008 21:13

graent.jpgRannsóknir sýna að græn svæði í umhverfinu hafi góð áhrif á heilsu fólks. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá nýrri rannsókn á heimasíðu sinni sem sýnir fram á ágæti grænna svæða. 

Fólk sem býr í umhverfi þar sem stutt er í almenningsgarða, gróður og tré deyr síður úr alvarlegum sjúkdómum. Talið er að græn svæði bæði létti lundina og hvetji fólk til hreyfingar.

Rannsökuð voru dauðsföll og þeir sem bjuggu kringum græn svæði urðu síður hjartveikir eða veikir af öðrum slíkum lífsstílssjúkdómum.

Unnið er nú markvisst að fjölgun grænna svæða í borgum Bretlands.

www.vb.is 09.11.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066