| Græna umslagið og greiðsluyfirlit |
| Mánudagur, 30. Apríl 2007 10:00 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image http://www.hjarta.net/images/frettir/Graena_umslagid.jpg Fyrirkomulagi á upplýsingum um mánaðarlegar greiðslur til lífeyrisþega hefur verið breytt. Í stað mánaðarlegra greiðsluseðla verður lífeyrisþegum nú sent eitt ársyfirlit sem sýnir allar greiðslur og þær forsendur sem liggja að baki útreikningi á þeim yfir eitt ár. Nú er þetta nýja yfirlit í fyrsta sinn sent að vori, en mun í framtíðinni verða sent í lok árs og gilda fyrir næsta almanaksár. Aukin rafræn þjónustaTryggingastofnun hefur markað sér þá stefnu að auka markvisst rafræna þjónustu við viðskiptavini sína. Mánaðarlegir greiðsluseðlar eru héðan í frá aðgengilegir á vef ríkiskattstjóra, www.skattur.is. Til að skoða þá þarf viðkomandi að nota sama veflykil og notaður er við framtalsgerð. Mánaðarlegir seðlarSamhliða útsendingu á árlegu greiðsluyfirliti verður hætt að senda út mánaðarlega greiðsluseðla, nema þess verði sérstaklega óskað. Þeir sem vilja eftir sem áður fá seðlana senda til sín í pósti geta sótt um það með því að hafa samband við starfsfólk þjónustumiðstöðvar, næsta umboðsmann eða senda póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Upplýsingasíða um græna umslagið |

Fyrirkomulagi á upplýsingum um mánaðarlegar greiðslur til lífeyrisþega hefur verið breytt. Í stað mánaðarlegra greiðsluseðla verður lífeyrisþegum nú sent eitt ársyfirlit sem sýnir allar greiðslur og þær forsendur sem liggja að baki útreikningi á þeim yfir eitt ár.