| Greiða þarf komugjald vegna innlagnar á sjúkrahús |
| Laugardagur, 03. Janúar 2009 09:24 |
|
Engar breytingar voru gerðar á komugjöldum í heilsugæslunni á dagvinnutíma nú um áramótin þegar gjöld fyrir ýmsa aðra heilbrigðisþjónustu hækkuðu. Um áramótin tóku gildi tvær reglugerðir um komugjöld í heilbrigðisþjónustunni. Gildir önnur fyrir sjúkratryggða en hin fyrir þá sem eru ósjúkratryggðir. Breytingar til hækkunar stafa fyrst og fremst af verðlagsbreytingum, að sögn heilbrigðisráðuneytisins. Komugjöld fyrir sjúkratryggða utan dagvinnutíma á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis hækka nú úr 2.200 kr. í 2.600 kr. Gjöld fyrir ellilífeyrisþega 70 ára og eldri og örorkulífeyrisþega hækka um 200 kr. og verða 1.300 kr. Gjöld vegna vitjana lækna hækka einnig. Fyrir vitjun læknis á dagvinnutíma greiða sjúkratryggðir nú almennt 2.800 kr. í stað 2.400 kr. áður en t.d. ellilífeyrisþegar greiða helmingi minna. Læknisvitjun utan dagvinnutíma kostar almennt 3.800 kr. fyrir sjúkratryggða en var 3.300 kr. Morgunblaðið 02.01.2009 |
