facebook

Hægur hjartsláttur tengdur erfðum
Mánudagur, 07. Mars 2011 14:40

EVísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar, ásamt fleiri vísindamönnum frá Íslandi, Hollandi, Danmörku og Bandaríkjunum, greindu í dag frá uppgötvun varðandi fráviki í erfðaefni mannsins sem tengist heilkenni sem kennt er við sjúkan sínushnút (Sick Sinus Syndrome).

Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í vefútgáfu vísindatímaritsins Nature Genetics. Þar er sagt frá fráviki í erfðaefninu sem virðist tengjast aukinni hættu á að fá heilkennið sem kennt er við sjúkan sínus í Íslendingum.

Líkurnar á því að fólk sé greint með heilkennið eru um 6% fyrir þá sem ekki eru með umrætt erfðafrávik en líkurnar aukast tólf og hálffalt í um 50% hjá þeim sem eru með frávikið.

Sjúka sínus heilkennið veldur m.a. truflun á hjartslætti sem lýsir sér í óeðlilega hægum hjartslætti. Þess verður gjarnan vart í eldra fólki og margir sem líða af heilkenninu þurfa á gangráði að halda.

www.mbl.is 06.03.2011

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066