| Handbók Hjartaverndar |
| Mánudagur, 19. Maí 2008 11:07 |
|
Alls hafa ríflega 35.000 Íslendingar lagt sitt á vogarskálarnar til að rit þetta gæti orðið að veruleika með því að taka þátt í hinum mörgu hóprannsóknum Hjartaverndar. Rannsóknum sem hafa gefið ómetanlegar upplýsingar um stöðu einstakra áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma meðal Íslendinga. Það er einlægur vilji og ósk Hjartaverndar að rit þetta megi nýtast sem flestum og að það beri fyrst og fremst vitni um þökk til handa íslensku þjóðinni fyrir einstakan hlýhug og velvilja í garð Hjartaverndar. Hægt er að nálgast Handbókina með því að smella hér www.hjarta.is 18.05.2008 |
