| Heilbrigðiskerfið gæti hrunið |
| Þriðjudagur, 23. Nóvember 2010 12:23 |
|
„Íslendingar gætu þurft að koma upp sjúkratryggingakerfi í nákominni framtíð,“ segir Guðrún. „Þetta er fyrirsjáanleg þróun sem mögulega er hægt að koma í veg fyrir. Íslendingar eru stoltir af því að búa við gott heilbrigðiskerfi en það er veruleg hætta á því að því verði fórnað nú í kjölfar efnahagshrunsins. Eftir slíkt hrun verður þjóðfélagið annars konar en við höfum þekkt. Við höfum búið við gott heilbrigðiskerfi hér í mörg ár. Við hverfum aftur um áratugi hvað varðar aðgengi að þjónustu.“ Guðrún Bryndís kom fram í sjónvarpsþættinum Návígi með Þórhalli Gunnarssyni á dögunum og ræddi um útreikninga sína og tækifæri í hagræði með verðkönnun á þjónustu sjúkrahúsa – einnig LSH. Hún hætti við framboð sitt til stjórnlagaþings til að geta tjáð sig um málið í fjölmiðlum. Þegar breytingar eru gerðar í heilbrigðisþjónustu er mikilvægt að líta á kerfið sem eina heild og hlutverk hennar í samfélaginu. Sem dæmi nefnir Guðrún að á sjúkrahúsum á landsbyggðinni séu framkvæmdar minni aðgerðir sem eru ekki framkvæmdar á LSH og biðlistaaðgerðir, svo sem bæklunaraðgerðir og háls-, nef-, og eyrnaaðgerðir - þetta gæti leitt til þess að aðgerðir verði að hluta til framkvæmdar á einkareknum skurðstofum á höfuðborgarsvæðinu sem eru í dýrari en skurðstofur á sjúkrahúsum landsbyggðar. „Þessi þróun gæti orðið afdrifaríkari en margan grunaði,“ segir Guðrún Bryndís. „Það er afskaplega óvarlegt að gera ráð fyrir því að LSH geti tekið við öllum þessum aðgerðum án þess að fá greiðslu fyrir. Kostnaður vegna einfaldra aðgerða á landsbyggðarsjúkrahúsum er lítill borin saman við verðskrá LSH. Það felst ákveðin þversögn í því að ábati náist með því að flytja þjónustu þangað sem kostnaðurinn er hærri.“ Kristjana Guðbrandsdóttir ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) www.dv.is 20.11.2010 |
