| Heilbrigðisþjónustan í viðbragðsstöðu |
| Þriðjudagur, 07. Október 2008 10:27 |
|
Undirbúingur af hálfu forstjóra er þegar hafinn. Þá hefur heilbrigðisráðherra falið forstjóra og lækningaforstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að koma á fót bráðaþjónustu, eða samsvarandi úrræðum, sem aðstoðar fólk sem á í tímabundnum erfiðleikum vegna umrótsins sem nú ríður yfir.
Fram kemur í tilkynningunni að ráðherra telji ljóst að mjög muni reyna á heilbrigðisþjónustuna, sem eina veigamestu grunneiningu samfélagsins, á næstunni en að hilbrigðistarfsmenn séu þrautþjálfaðir og afar færir til að leiðbeina og hjálpa þeim einstaklingum sem séu hjálparþurfi. |
