| Heilsubætandi áhrifa áfengis gætir skjótt |
| Laugardagur, 08. Mars 2008 00:00 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/glas.jpg
Þetta er niðurstaða fjögurra ára rannsóknar sem 7.500 manns tóku þátt í. Allir voru bindindismenn við upphaf rannsóknarinnar, en sex af hundraði fóru að neyta áfengis í hófi, eins eða tveggja drykkja á dag, á meðan rannsóknin stóð.
Þeir sem einungis neyttu léttvíns fengu mesta heilsubót, segir í niðurstöðunum, sem birtust í American Medical Journal. Hjartalæknar vilja þó taka fram að áfengi sé ekki allsherjarheilsubót. |

Miðaldra bindindismenn geta dregið hratt úr hættunni á að fá hjartaáfall með því að fá sér víndreitil á degi hverjum, segja bandarískir vísindamenn. Þeir sem byrja áfengisneyslu eru 38% ólíklegri til að fá hjartasjúkdóm en þeir sem hafna áfengi alveg.